|
skemmtilegt sjónvarpsefni:)
Hérna kemstu að ýmsu um sjálfan þig:)
|
08.08.2006 21:19:30 / borga
Hellú everyone  .....maður er nú alveg slappur í
blogginu......myspace hefur tekið
yfirhöndina.....www.myspace.com/borgabeib Það er málið
»
06.05.2006 19:39:43 / borga
Sælt veri fólkið!! Núna er maður alveg búin að missa það...ekki
búin að blogga í mánuð eða eikkað álíka....fussumsvei!
En það er ýmislegt að frétta...ég átti afmæli 22. apríl, hélt
smá ammlis-partý fyrir stelpurnar...sem var bara æði pæði...fyrir
utan smá uppákomu (skilji þeir sem eiga að skilja) en við höfðum
það voða gott píurnar að vanda oga gaman að eiga afmæli á
laugardegi Það sem var svo yndislegt var að það mættu eiginlega
allar yndislegu stelpurnar mínar og Tinna Dögg kom mér svo á
óvart...hún birtist bara í dyrunum hjá mér...hún átti að vera útí
Danmörku en kom óvænt bara til að vera með mér á afmælinu...hún er
alveg yndisleg En já...takk æðislega fyrir allar gjafirnar sem
þið gáfuð mér stelpur og fyrir að koma og eyða kvöldinu með
mér....love you guys;#
En núna er maður bara í próflestri....er búin í tveim prófum og
á tvö eftir...er að fara í próf í opinberri stjórnsýslu á
mánudaginn...hlakka ekki til....það er mjög strembið og frekar
leiðinlegt fag En svo á ég bara eitt próf eftir og það er á
laugardaginn 13. maí og svo er ég sloppin 
Ég hlakka ekkert smá til eurovision helgarinnar, þá verður
matarklúbbur hjá búbú jones og ef Silvía kemst áfram þá verður
snilld að horfa á eurovision og fara svo á skrall í bæinn....það
verður þvílík silvíustemning...allir að krossleggja fingur um að
hún komist áfram Ég veit ekki hvað er að mér...ég er svo mikill
eourovision - fan.......það eru örugglega margir að velta fyrir sér
hversu sorgleg ég er...en ég hef alltaf verið svona....I just love
it
En já...elva Dögg er að fara að láta skíra engilinn sinn á
morgun, ég hlakka ekkert smá til Það verður svo gríðarleg veisla
hjá henni eftir skírnina og þetta verður bara gebbað...hlakka til
að sjá litla snúllann í kjól....
En já...nú er mál að fara að læra meira........ég geri mitt
besta að blogga sem fyrst aftur......promise
Love, Hildigunnur Borga
»
15.04.2006 01:37:48 / borga
Jæja þá......það er nú aldeilis langt síðan maður tjáði sig hér
síðast En núna hef ég fullgilda afsökun þarsem maður er búinn að
vera að standa í flutningum og veseni....djöfull er leiðinlegt að
flytja maður!! En þetta er allt ad verða búið, við erum búnar að
koma okkur vel fyrir í Geislanum....íbúðin er vægast sagt geggjuð
En maður er nú aldeilis búin að vera úr sambandi við umheimin síðan
við byrjuðum að flytja!!´Við erum búnar að vera net lausar og
´heimasímalausar og stöð 2 lausar....skelfilegt...hehe...
En núna eru að koma páskar, en maður verður nú aldeilis busy við
að læra, þarf að skila 16 bls ritgerð 21.apríl og svo byrja ég í
prófum 4.maí En svo á ég náttlega afmæli 22.apríl og viti
menn...á laugardegi
En ég vil bara segja gleðilega páska við alle sammen
Hilsen, Hildigunnur
»
14.03.2006 12:44:21 / borga
»
26.02.2006 23:42:34 / borga
Hæ people, pabbi gamli er orðinn svo duglegur að skanna
myndir úr fortíðinni með nýja skannanum sínum....að ég bara varð að
leyfa ykkur að sjá mig og Erlu þegar við vorum litlar dúllur
Annars lítið að frétta....bolludagur á morgun...óska öllum
gleðilegs ofáts
yours truly, Hildibeibið

»
20.02.2006 15:53:31 / borga
Jæja....Erna
ferna var víst að klukka mig.....!
4 störf sem ég hef starfað
við um ævina: Hótelstarf, leikskóli, rónasjoppa við
austurstræti og fatabúð.
4 myndir sem ég get horft á
aftur og aftur: The notebook, Tommy boy, 10 things I hate
about you, Iceage
J
4 staðir sem ég hef búið
á: Egilsstaðir,
Árbærinn, Hilleröd, Sóltún 7
4 sjónvarsþættir sem ég fíla: The simpsons,
Friends, Sex and the city, desperate housewifes
4 staðir sem ég hef farið í
frí: Spánn, Kenýa, Praq, Danmörk
4 heimasíður sem ég heimsæki
daglega: hi.is, ýmsar skemmtilegar bloggsíður,
mbl.is, hotmail.com
4 uppáhalds
matartegundir: Gúllas!!! Pizza, íslenskt lambakjöt með
öllu tilheyrandi og mikilli yndislegri sósu með lambakjötssoði
í!! burrritos....mmmm
4 cd sem ég gæti aldrei verið
án:
Coldplay ( a rush of blood to the head) Maus (musik) Fullt af hip
hip og r&b diskum (óteljandi margir) Míns eigins skrifaði
diskur með öllu besta soft rockinu mínu (bara góður
diskur)
4 staðir sem ég vildi
frekar vera á:
Ég er nú ansi sátt hér á klakanum en ef það væri einhver staður sem
ég mætti fara á í smá tíma í frí eða eikkaðþá væri það
Kaupmannahöfn, Florida, Ástralía eða Mombasa
4 hlutir sem ég hlakka
til: Þegar ég klára stjórnmálafræðina, Þegar við
flytjum í þorláksgeislann og mamma og krakkarnir verða oftar hjá
okkur Þegar við stelpurnar ætlum að halda risapartýið í apríl
Þegar ég verð utanríkisráðherra....hehe
Ég ætla að
klukka: Heiðu Bertu, Ástu sóley, Björgheiði , Hörð
Braga og Hadda minn
»
17.02.2006 11:55:47 / borga
Hæ alle sammen, ég biðst formlega afsökunar á því að ég er ekki
búin að blogga í óratíma!! EN batnandi mönnum er best að
lifa:=)
Það er sko ýmislegt að frétta....elsku litli engillinn hennar
Elvu er fæddur og er vægast sagt gullfallegur...hann er algjört æði
og algjör hetja Elva Dögg er sko rík kona núna....hún á
yndislegan strák og hún verður besta mamma í heiminum Hvernig
litli kom í heiminn var ekki eins og við höfðum óskað okkur en allt
er gott sem endar vel og þetta ævintýri gerir það svo sannarlega!
En Elva mun segja betur frá því öllu saman á síðunni hans Darons
litla og linkinn er að finna hér á síðunni minni
En annars er maður bara sprækur....duglegur í ræktinni, er
líka í átaki í skólanum því núna er ég að fara að skila
milljón ritgerðum og fara í hlutapróf og ég veit ekki hvað og
hvað....míns ætlar að standa sig, þó að þetta sé örugglega
leiðinlegasta önn ever....þá meina ég að ég er að taka óvenju
leiðinlega kúrsa núna...en þetta eru bara svona skylduáfangar sem
eru stundum ekki sem skemmtilegastir en þeir eru nauðsynlegir segja
þeir til að maður verði sem bestur stjórnmálafræðingur
Svo er líka að frétta að við erum búin að selja sóltúnið og
mamma er búin að kaupa æðislega íbúð í grafarholti...glænýja
þannig að ég er að fara að flytja uppí sveit!! Ég er bara mjög
spennt yfir þessu! En samt ekki spennt yfir flutningunum sjálfum
því það er svo leiðinlegt að flytja....þannig að öll hjálp sem er
boðin er þegin ég verð mað þrælabúðir hér fyrir vini og vandamenn
í lok mars.....muahahahaha! 
En allavega....þetta er gott í bili,
Later, Hildibeibið
»
17.01.2006 14:51:15 / borga
flæ! Hvað syngur í fólkinu?? Sjálf segi ég allt það
besta....Haddi minn á afmæli í dag og það er ekkert nema
æðislegt....TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ÁSTIN MÍN :# Annars er
lítið planað í dag...bara vera með afmælishnoðranum mí´num og gera
eitthvað skemmtilegt. Fer á æfingu á eftir að vísu og ætla svo að
elda eitthvað æðislegt fyrir Hadda ÉG vaknaði í morgun og bakaði
köku fyrir hann og kom inn í herbergi með logandi afmælistertu og
hann blés á kertin og opnaði pakkana frá mér....æ þetta var æði
pæði En ég vona að allir hafi það gott í dag og alla daga.....ég
er allvega í góðu skapi, var að fá einkunn í dag...sem þýðir að ég
er búin að fá tvær einkunnir og náði báðum...á eftir að fá tvær
einkunnir sem hljóta að fara að koma...það er allavega eins gott
því ég er ekki enn búin að fá námslán og þau koma ekki fyrr en
allar einkunnir eru komnar í hús. En þetta kemur allt í
ljós....
Later, Hildigunnur Borga
»
11.01.2006 14:45:34 / borga
Hæ Ég vona að sem flestir skrifi undir þetta og taki þátt,
þetta gæti stoppað DV sorablaðið sjálft í að birta ýktar myndir af
viðkvæmum málum og ritstjóri blaðsins og blaðamenn gætu farið að
bera virðingu fyrir einkalífi annara!! farið inn á linkinn hér
fyrir neðan og sendið ykkar atkvæði eða farið inná síðu sambands
ungra sjálfstæðismanna www.sus.is ! Stöndum saman og látum
endurskoða ritstefnu DV!!
http://www.deiglan.com/askorun">
src="http://www.deiglan.com/askorun/askorun.gif"
width="150px" height="200px" border="0">
»
08.01.2006 01:40:31 / borga
»
30.12.2005 12:58:21 / borga
»
24.12.2005 16:24:02 / borga
hæ hæ hæ hæ 
Ég geri mér fulla grein fyrir því hversu latur bloggari ég
er.....en núna vil ég aðeins koma með smá jólafærslu en mun svo
bæta fyrir blogg-leti mína á milli jóla og nýárs
Ég vil óska öllum yndislegra jóla, og þar sem ég er austur á
landi þá vil ég segja öllum sem mér þykir vænt um í rvk að eiga
æðisleg jól og vona að allir hafi það gott með fjölskyldu sinni.
Haddi minn: ég elska þig og hafðu það yndislegt með fjölskyldunni í
kvöld, bið að heilsa innilega þeim öllum, takk fyrir yndislegt
bréf.......
Erna mín: hlakka til að opna pakkann frá þér....ég er "ekki"
búin að káfa mikið á honum....#hóst# heyrumst í kvöld
Elva Dögg: hlakka til þegar þú opnar pakkann frá mér....kannsi
ættir að gera það í einrúmi....nema að fjölsk. þín sé opin fyrir
ýmsu....hummhumm! hehe....og gleðileg jól til litla prinsins vona
að hann hafi það notalegt í hlýjunni um jólin....
Tinna Dögg: Ég veit þú hefur það gott í kvöld með mömmu þinni og
bræðrum....heyri kannski í þér í kvöld sæta
Búbú Jones: I wish you a merry christmas I wish you a merry
christmas....kiss kiss...vona að þú hafir það yndislegt í kvöld
beib
Erla Kolbrún, Andrea, Elín Edda, Hafdís, Hrönn, Anna T., Íris
Dögg og fjölskyldur........óska ykkur öllum rækjunum mínum
gleðilegra jóla.......sjáumst kannski á gamlárs í góðum gír
Jólakveðja frá Hildigunni á Egilsstöðum

»
29.11.2005 15:22:02 / borga
Hæ flæ Díses, ég trúi ekki að ég sé orðin svona latur
bloggari Eftir jól mun allt breytast...promise Ég er buin að
eiga góðan dag! Ég var vakin af kærastanum mínum með morgunmat og
kossum...ekkert smá næs....hann kom til mín á hádeginu úr vinnuni
og gaf mér uppáhalds bakarísmatinn minn og yndislega kossa Takk
ástin mín aftur!! Svo er bara verið að læra! En allavega það
hefur mikið gerst. Mín komst ekki á stelpudjammið sökum
veikinda....damit!!!var svo pirruð, þetta er gjörsamlega versti
tími til að vera veik af öllum!! En stelpurnar skemmtu sér
konunglega en voru ekkert alltof sáttar við mig...en ég mæti næst!!
En þetta er líka alveg slæmur tími fyrir veikindi líka sökum
prófana...ég er að fara í fyrsta prófið mitt ekki á morgun
heldur hinn.....úff ég skelf.... En í ár hef ég ákveðið að trompa
prófin!! Ég ætla mér að vera viss um að ég hefið náð öllum prófunum
þegar ég held upp á jólin! Ekkert rugl! Enda er ég í nokkrum mjög
áhugaverðum áföngum í ár og það verður ekkert böl að lesa fyrir
þá... En spáið í því hvað Achmed er heppinn...hann er búin í
prófum...son of a bitch! Nei...til hamingju Achmed...frábært hjá
þér En nóg um prófin....
ÞAð er mikið að gerast í íslensku sjónvarpi um þessar
mundir...Gréta sveik nú aldeilis alla í ástarfleyginu þegar hún
ákvað að kasta einum af vinum sínum fram af borði fyrir annan
strák...ó mæ god...hún er hræðileg...ekki gæti ég horft framan í
þau öll eftir þetta! En við skulum sjá hvort hún verði
útskúfuð eður ei! En já það er líka allt að gerast í íslenska
Bachelornum og efst á baugi er hin fræga setning bachelorsins:
Viltu fá þessa rós eða ekki.....hahahaha ég fór í kast, hann var
alveg reiður! En já eins og örugglega allir vita þá sagði Íris nei
við rós og allt varð vitlaust, ég held að það hafi margir
verið að veðja á írisi..ég allavega hélt með henni....síðan hún
ástkæra systir mín datt út þá fannst mér Íris vera best
af stelpunum sem eftir voru, þannig að ég var ein af þeim
sem voru í sjokki þegar hún sagði nei. Í kjölfarið var mjög
vandræðaleg stund þar sem bachelorinn vissi ekkert hvað hann áttia
ð gera og Jenný vildi varla taka við rós af því hún hélt að það
væri rósin sem ætluð var Írisi...en enginn veit hvor átti ekki að
fá rós...vá hvað verður gaman að sjá næsta þátt !! Og eigum við að
tala um það að það err lokaþátturinn í Americas next top model á
morgun....shit hvað ég er spennt...það er eins gott að Naima
vinni!! En ok það síðasta sem ég vildi ræða varðandi íslenskt
sjónvarp var herra Ísland sem var síðastliðinn fimmtudag. Þetta var
mjög skrautleg keppni, mér fannst hún mjög óundirbúin og klaufaleg
eitthvað og mér fannst það alveg hræðilegt að gefa áhorfendum allt
vald...guð, alltí lagi að gefa áhorfendum 30% vægi eða slíkt en með
því að geffa alþýðunni 100% vald þá er þetta ekkert annað en
vinsældarkosning, eða sá sem á flesta vini, hann vinnur...sem
er glatað og það sýndi sig með úrslitunum hvað þetta var glötuð
ákvörðun að áhorfendur velja herra ísland. Þessi Óli Geir og
gaurinn í öðru sæti eru gaurar sem ég myndi aldrei í lífinu
kjósa og ég skammast mín fyrir það að þeir fara út sem fulltrúar
íslands og taka þátt í keppnum. omg hvað það er htæðilegt, óli
geir er naggur sem er súper chocko sem gengur í einskonarr
mótor fötum og gaurinn í ö´ðru sæti sem by the way sagðist
ætla að strunsa útaf sviðinu ef hann vinni ekki er bara plain
slæmur og ekki kroppur fyrir 5 aur!!!! 4-5 sætið fannst mér
álitlegustu gauranir, ég hefði vilja sjá Elías í fyrsta sæti og
Haffa Hauks í öðru sæti og gaurinn SEM GLEYMDIST í kosningunni, ég
hefði viljað sjá hann í þriðja sæti og jónas í 4. sæti og svo er
mér alveg sama!! En eruð þið að grínast með greyið gaurinn sem var
ekki með í kosningunni, meira en mánuður af æfingum og missi úr
vinnu ´fl. fyrir ekki neitt! Hann átti ekki einu sinni möguleika á
því að vinna!! Hvað er það!! Hann átti 100% skilið að vera í topp
10 og líka í topp 5!! Þetta sýndi bara einna best hvað keppnin var
klaufaleg í ár,það var enginn stíll yfir henni og allt óundirbúið
og ömurlegt!!!
Én ok, þá er ég búin að koma þessu frá mér.... En vá hvað
ég get ekki beðið eftir því að prófið eru búin, þá get ég
farið að hugsa um jólin með fullum huga, ég er sko að berjast við
jólaskapið í mér...og það er mjög erfitt...ég hlakka svo til
jólanna að það er bara rugl... En ég ætla að segja þetta nóg í
bili....ég vona að allir hafið það gott í jólaundirbúning og
prófum, og hverju sem þeir taki sér fyrir hendur....
Later.....Hildibeibið
»
15.11.2005 13:38:49 / borga
»
12.11.2005 23:56:50 / borga
HÆ Sorry hvað ég er löt við að blogga þessa dagana...það er
nóg að gera hjá skvísunni, en núna ætla ég bara að blogga
stutt og tileinka bloggi þessu tveim mikilvægum manneskjum í lífi
mínu......Ásta Sóley átti afmæli í gær 11. nóvember og Heiða Berta
á afmæli í dag, þetta eru yndislegar krúsí´dúllur.....TIL HAMINGJU
SÆTU M'INAR ÉG vona að þú lesir þetta Ásta því þú ert svo langt í
burtu og ég gat ekki sagt til hamingju við þig
Later.........Hildibeibið
»
Síður: 1 2 3
|
|